The Finest Hour - 4 vindla pakki
19,500 ISK
1
/
af
2
Venjulegt verð
19,500 ISK
Útsöluverð
19,500 ISK
Venjulegt verð
20,190 ISK
Einingaverð
/
per
VSK innifalinn
Gat ekki hlaðið möguleika á hvar er hægt að sækja pöntun
Vara uppseld!
En við getum látið þig vita þegar hún kemur aftur.
3% afslátturUppselt
Þessi pakki ber nafn einnar frægustu ræðu nútímasögunnar. Þegar myrkrið var sem mest í seinni heimsstyrjöldinni stappaði Winston Churchill stálinu í bresku þjóðina með þessum orðum. Hann hvatti fólk til að sýna sitt allra besta andspænis mótlætinu og ranglætinu svo að komandi kynslóðir myndu horfa til baka og segja: „This was their finest hour.“
Að eiga sína bestu stund snýst um að ná árangri, sigrast á erfiðleikum og standa uppi sem sigurvegari. Þessi pakki frá Davidoff er settur saman fyrir einmitt þau augnablik í þínu lífi.
Hér færðu fjóra ólíka vindla úr Winston Churchill línunni, sem allir eiga það sameiginlegt að vera flóknir, ríkir af bragði og óaðfinnanlega vafðir. Þeir bjóða upp á einstaka blöndu tóbaks frá Níkaragva, Mexíkó, Ekvador og dóminíska lýðveldinu, sem skilar sér í djúpum tónum af leðri, ristuðum hnetum, kaffi og við.
Þetta er ekki bara vindlapakki, þetta er söguleg upplifun fyrir þínar stærstu stundir.
- Davidoff WSC Churchill: Tignarlegasta stærðin, nefnd eftir manninum sjálfum. Löng og njótandi upplifun.
- Davidoff WSC Petit Corona: Styttri og snarpari útgáfa, fullkomin þegar tíminn er naumur en krafan um gæði sú sama.
- Davidoff WSC Robusto: Vinsælasta stærðin í dag. Fullkomið jafnvægi milli bragðs og reyktíma.
- Davidoff WSC Toro: Stór og mikill vindill sem leyfir flókinni tóbaksblöndunni að njóta sín til fulls.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar
- Vörutegund: Smakkpakki
