1
/
af
5
Anna Sprútt
12.900 ISK
Venjulegt verð
12.900 ISK
Útsöluverð
12.900 ISK
Venjulegt verð
Einingaverð
/
per
VSK innifalinn
Gat ekki hlaðið möguleika á hvar er hægt að sækja pöntun
Í kjallaranum í Fischersundi 3, undir úr sér gengnum gólfborðum, bjó kona sem hét Anna. Hún sást sjaldan en fólk vissi af henni. Hún þekkti húsið eins og lófann á sér, talaði við það og hlustaði. Seint á myrkum kvöldum mátti heyra lágvært glamur í glösum og flöskum og út lagði sætan angan af einhverju forboðnu. Sögusagnir gengu um að Anna bruggaði sinn eiginn landa, af vandvirkni en ávallt í felum. Stundum opnaðist kolalúgan og útrétt hönd útbýtti flöskum. Þeir sem dreyptu á sögðust finna bragð af hrárri íslenskri jörð, birkiberki, kerfli og hvannarfræjum. Hún seldi veigarnar aðeins fyrir lög, ljóð eða leyndarmál. Við heiðrum minningu Önnu Sprútt með handgerðum snafsi í hennar nafni sem inniheldur íslenskar lækningajurtir og ósagðar sögur
Ilmur fylgir með - 5 ml.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar
- Vörutegund: Snaps
- Stærð: 37.5 cl
- Styrkleiki: 35.0%
Greiðsluleiðir:

Anna Sprútt
12.900 ISK
HVERNIG SKAL NJÓTA?
- Hellið Önnu Sprútt í glas – Tómt eða yfir klaka.
- Skannið QR-kóðann og og ýtið á ‘spila´.
- Úðið ilminum á húð, á ilmstrimil eða látið hann svífa um loftið.
- Lesið ljóðið upphátt, látið augu mætast og segið: „Skál!“ Í einrúmi segið: „Skál fyrir Önnu.“
- Takið sopa, andið að ykkur ilminum og hlustið á anda Fischersund.
Tjargað timbur hús niðri við höfnina,
reykur fyllir sjávarloftið.
Flygsur af flöktandi ösku
falla eins og snjór á ryðgað málmþak
Þurrkaður kerfill og hvönn hanga úr þverbitum
Piparkorn og anísfræ í vasa veðraðrar leðursvuntu
Hrjúfar hendur, klístraðar af trjákvoðu
eima rótastilka og lauf
Íslenskar lækningajurtir
Safnast í anda
sameinast í anda
SKÁL!