Mosi Gin / Langjökull / úr Chardonnay tunnu
14.900 ISK
Venjulegt verð
14.900 ISK
Útsöluverð
14.900 ISK
Venjulegt verð
Einingaverð
/
per
VSK innifalinn
Gat ekki hlaðið möguleika á hvar er hægt að sækja pöntun
Langt undir yfirborði næststærsta jökuls Íslands er eins og tíminn standi í stað.
Inni í manngerðum íshellinum hvíla tunnur af Mosa gini í ærandi þögn. Enginn vindur og ekkert ljós. Bara blákaldur veruleiki, hreint loft og stöðugur þrýstingur. Þetta er ekki þroski í hefðbundnum skilningi heldur frekar hæg umbreyting.
Í Langjökli, þar sem kuldi og raki loka viðnum nánast alveg, verða áhrifin þannig að tunnan „innsiglast“ og bragðið verður kraftmeira, dýpra, sætara og fyllra.
Þetta Mosi Gin er veðrað í veðrað í Chardonnay tunnum í Langjökli. Steinefnakennt og blómstrandi bragð frá frá Búrgúndi í bland við harðneskju íslenskrar eldfjallanáttúru. Silkimjúkt en margslungið.
Þessi þroskun veitir gininu sérstakan hvítvínslegan karakter.
Við mælum með að þú drekkir ginið á klaka með örlitlu Fentimans Connoisseurs tóniki sem fæst hér í versluninni - og enga sítrónu eða límónu þannig að ginið njóti sín sem best. Þessi margslungnu brögð gerir ginið líka að að sérlega fjölhæfum drykk sem nýtist vel í klassískum kokteilum - það gefur gini og tónik dramatíska dýpt, skapar óvenjulegan og minnistæðan martini og umbyltir Negroni með sínum einstaklega reykta karakter. Jafnframt er það nægilega fágað til að njóta þess eins og sér.
Framleitt í mjög takmörkuðu magni.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar
- Vörutegund: Gin
- Stærð: 50 cl
- Styrkleiki: 41.0%
- Uppruni: Ísland
Greiðsluleiðir:

Mosi Gin / Langjökull / úr Chardonnay tunnu
14.900 ISK
GIN MÓTAÐ AF NÁTTÚRUÖFLUM
Handgert gin, útsett fyrir íslenskri náttúru og hennar óviðjafnanlegu öflum. Þetta gin er ekki búið til í kjallara heldur úti í hráum öfgum Íslands, annars vegar inni í jökli og hins vegar á tindi eldfjalls. Tvær andstæður en einn andi - vínandi.
Á hvorum stað fyrir sig eru tunnur af ýmsu tagi - Islay viskítunnur, Chardonnay tunnur, Vermouth, Mezcal og Sauternes. Meðan ginið þroskast í tunnunum sameinast það og samþættir karakter tunnunnar. Þetta er árgangsgin og engar tvær lotur eru eins.
Fyrst á markað koma Chardonnay og Islay viskí útgáfurnar. Ginið er eingöngu til sölu hjá Santé! Upplag er verulega takmarkað og forsala er hafin.
Sjá einnig
-
UppseltBirgi:Mosi GinMosi Gin / Eldfell / úr Chardonnay tunnu
Venjulegt verð 14.900 ISKÚtsöluverð 14.900 ISK Venjulegt verðEiningaverð / per -
UppseltBirgi:Mosi GinMosi Gin / Eldfell / úr Islay viskítunnu
Venjulegt verð 14.900 ISKÚtsöluverð 14.900 ISK Venjulegt verðEiningaverð / per -
Birgi:FentimansFentimans Connoisseur Tonic / 12 flöskur
Venjulegt verð 3.600 ISKÚtsöluverð 3.600 ISK Venjulegt verðEiningaverð / per
1
/
af
3