2024 Grand Bateau Blanc Bordeaux

2,770 ISK

Barriere Freres


Venjulegt verð 2,770 ISK
Útsöluverð 2,770 ISK Venjulegt verð
VSK innifalinn

Vara uppseld!

En við getum látið þig vita þegar hún kemur aftur.

Uppselt

Grand Bateau-vínin eru einhver hagstæðustu kaup í Bordóvínum. Grand Bateau er samstarfsverkefni Château Beychevelle Cru Classé í Saint-Julien og vínmiðlarans [fr. négociant] Maison Barrière.
Heiti vínanna [ís. Mikli bátur] tengist skipinu á miðanum, hinni goðsagnakenndu galeónu Château Beychevelle. Gárungarnir telja að mynd skipsins hafi verið stílfærð til að líkjast kínverskri júnku, til að ganga í augun á viðskiptavinum á Asíumarkaði.
Ch. Beychevelle er mikils metið vínhús og leggur metnað í Grand Bateau-vínin.
Vínunum er ætlað að vera opin og aðgengileg þegar þau koma á markað, með ferskum, skærum ávexti og tilbúin til að njóta með hversdagsmatnum.
Grand Bateau Blanc er gert úr 100% Sauvignon Blanc. Ljóst og frísklegt með ilmi af sítrus og suðrænunm ávöxtum og fersku aðlaðandi bragði af greipaldini, ferskjum og votti af vanillu í lokin.
Það passar einstaklega vel með steiktum fiski [e. fish and chips], skelfiski og geitaostum.

Nánari upplýsingar

  • Vörutegund: Hvítvín
  • Árgangur: 2024
  • Stærð: 75 cl
  • Styrkleiki: 12,5%
  • Þrúga: Sauvignon Blanc
  • Uppruni: Frakkland, Bordeaux